Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

BILUN AFMÖRKUÐ VIÐ HEIMILI NOTANDANS

Ekki var rétt sem fram kemur í þessari frétt, að neyðarhnappar sem margir eldri borgarar treystu á væru óvirkir vegna bilunar í símkerfi Vodafone. Engin bilun varð í kerfi Vodafone né í þeim kerfum sem tengjast neyðarhnöppum. Truflun varð hins vegar á símaþjónustu við viðskiptavin Vodafone á Akranesi, en sú truflun orsakaðist af bilun í búnaði á heimili viðskiptavinarins og hafði ekki áhrif á aðra notendur. Búnaðinum hefur verið skipt út fyrir nýjan og þjónustan við umræddan viðskiptavin er komin í eðlilegt horf.
Virðingarfyllst,
Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi
s. 669 9310

mbl.is Neyðarhnappar óvirkir um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notkun gjaldfærð strax

Vegna þessarar fréttar vill Vodafone taka fram, að öll símnotkun úr frelsis-númerum hjá Vodafone - hvort sem um er að ræða hefðbundin símtöl, SMS eða þátttaka í leikjum eins og þessum - er gjaldfærð strax við notkun. Frelsis-notendur hjá Vodafone geta því ekki stofnað til skuldar eins og þeirrar sem hér er til umfjöllunar.

Virðingarfyllst,
Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi Vodafone


mbl.is Fjárhættuspil fyrir börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn tölvupóstur og eitt skilti

Vegna þessarar fréttar vill Vodafone koma því á framfæri, að fyrirtækið leggur ríka áherslu á að fara að settum reglum og virða í hvívetna tilmæli Neytendastofu.

Sektin sem hér um ræðir er tilkomin vegna tilboðs sem starfsmenn eins fyrirtækis (sem er í viðskiptum við Vodafone) fengu í tölvupósti þann 18. mars sl. Fyrir slysni var orðið "fríkeypis" ekki tekið úr textanum og fyrir þær sakir er fyrirtækið sektað. Samkvæmt okkar bestu vitund er þetta eina tilvikið þar sem orðið "fríkeypis" hefur verið notað í útsendu efni frá því Neytendastofa óskaði eftir því, að orðið væri ekki notað í auglýsingaskyni.

Auglýsingaskiltið sem tilgreint er í fréttinni mátti sjá af bílastæði fyrir framan verslun Vodafone í Skútuvogi í Reykjavík. Skiltinu var breytt í byrjun apríl í samræmi við óskir Neytendastofu og því vekur það furðu, að skiltið skuli vera grundvöllur ákvörðunar um að sekta fyrirtækið.

Starfsmenn Vodafone munu hér eftir sem hingað til leggja sig fram við að fara að tilmælum Neytendastofu.

Virðingarfyllst,
Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi Vodafone


mbl.is Neytendastofa sektar Vodafone
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Vodafone
Vodafone
Vodafone á Íslandi er fjarskipta-fyrirtæki sem leggur áherslu á góða þjónustu við viðskiptavini sína. Starfsmenn Vodafone eru um 350 talsins og þjónusta viðskiptavini á heimilum og hjá fyrirtækjum um land allt með farsíma, síma, nettengingar og sjónvarp.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband